Landspítali hlaðvarp

GEÐVARPIÐ // Eydís og Manda ræða um geðhjúkrun

Episode Summary

Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. Hún er gestadósent við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri þar sem hún var sviðsforseti og dósent 2016-2021. Eydís var stjórnandi í hjúkrun á Landspítala í næstum tuttugu ár þ.e. á árunum 1997-2016. Þegar Ísland var með formennsku í Norðurskautsráðinu 2019-2021 var Eydís formaður sérfræðingahóps um heilbrigðismál á Norðurslóðum. Nýjustu birtingar Eydísar eru tveir ritrýndir bókarkafla í kennslubók um geðhjúkrun fyrir nemendur í meistaranámi í geðhjúkrun sem var að koma út á haustmisserinu 2022. Margrét Manda Jónsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og starfaði eftir útskrift á legudeild BUGL og svo í geðþjónustunni. Þar starfaði hún fyrstu árin sem aðstoðardeildarstjóri á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild og fékk mikinn áhuga á stjórnun. Manda kláraði MBA nám í HR 2016 og hefur starfað síðan þá sem deildarstjóri. Í dag er Manda í miðju breytingarstjórnunarferli þar sem hún stýrir nýrri deild sem kallast meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma – deild sem sérhæfir sig í greiningu, meðferð og endurhæfingu sjúklinga með geðrofseinkenni. Deildin var stofnuð í janúar 2022 og er því öll umbóta og þróunarvinna í fullum gangi. Helga Sif lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004, hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.

Episode Notes

Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun ræðir við gesti sína um sögu og þróun geðhjúkrunar ásamt geðhjúkrun á Landspítala. Gestir þáttarins eru þær dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir og Manda Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri. Eydís er dósent við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Hún var lektor við deildina 1991-1994 og klínískur lektor 2011-2016. Hún er gestadósent við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri þar sem hún var sviðsforseti og dósent 2016-2021. Eydís var stjórnandi í hjúkrun á Landspítala í næstum tuttugu ár þ.e. á árunum 1997-2016. Þegar Ísland var með formennsku í Norðurskautsráðinu 2019-2021 var Eydís formaður sérfræðingahóps um heilbrigðismál á Norðurslóðum.  Nýjustu birtingar Eydísar eru tveir ritrýndir bókarkafla í kennslubók  um geðhjúkrun fyrir nemendur í meistaranámi í geðhjúkrun sem var að koma út á haustmisserinu 2022.

Margrét Manda Jónsdóttir er menntaður hjúkrunarfræðingur og starfaði eftir útskrift á legudeild BUGL  og svo í geðþjónustunni. Þar starfaði hún fyrstu árin sem aðstoðardeildarstjóri á sérhæfðri endurhæfingargeðdeild og fékk mikinn áhuga á stjórnun. Manda kláraði MBA nám í HR 2016 og hefur starfað síðan þá sem deildarstjóri. Í dag er Manda í miðju breytingarstjórnunarferli þar sem hún stýrir nýrri deild sem kallast meðferðargeðdeild geðrofssjúkdóma – deild sem sérhæfir sig í greiningu, meðferð og endurhæfingu sjúklinga með geðrofseinkenni. Deildin var stofnuð í janúar 2022 og er því öll umbóta og þróunarvinna í fullum gangi.

Helga Sif  lauk BSc. í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1999. Hún lauk meistaranámi í geðhjúkrun við hjúkrunarfræðiskóla Washington University árið 2004,  hlaut doktorsgráðu í hjúkrunarfræði við sama skóla árið 2007 og lauk til viðbótar meistaranámi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík árið 2017. Helga Sif hlaut riddarakross árið 2021 fyrir brautryðjandastörf á vettvangi skaðaminnkunar fyrir fíkniefnaneytendur og aðra jaðarsetta hópa. Helga Sif hefur sérfræðingsleyfi í geðhjúkrun með áherslu á fíknisjúkdóma og hefur frá árinu 2009 verið faglegur bakhjarl Frú Ragnheiðar, skaðaminnkunarverkefnis Rauða Kross höfuðborgarsvæðisins, í sjálfboðavinnu.

Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptadeild Landspítala sem heldur úti Hlaðvarpi Landspítala og þeim sjálfstæðu þáttasyrpum sem tilheyra hlaðvarpsfjölskyldu spítalans.